Hann var þétt setinn bekkurinn í Forsalnum í gær þegar menn settust að mat sínum og gerðu honum góð skil. Og ekki spillti ræðumaður kvöldsins, hinn nýji alþingismaður okkar, Ágúst Bjarni, sem fór yfir farinn veg og var gerður góður rómur að máli hans. Þessari ágætu hrossakjötsveislu stjórnaði formaður félagsins, Magnús Gunnarsson, af festu og héldu veislugestir mettir heim á leið að henni lokinni.