Kæru Haukafélagar.
Síðustu daga hefur smitum vegna Covid 19 fjölgað verulega. Búast má því við að sóttvarnarreglur verði hertar á næstu dögum. Knattspyrnufélagið Haukar vill hvetja foreldra og aðra þá sem heimsækja Íþróttamiðstöðina á Ásvöllum að fylgja núgildandi sóttvarnarreglum, grímuskyldu og fjarlægðarmörkum.
Leggjum okkar af mörkum til að vinna bug á Covid 19 veirunni, öllum til heilla.
Áfram Haukar.