8 stelpur í Haukum valdar á æfingar hjá KSÍ

Haukar eiga átta fulltrúa á úrtaksæfingum yngri landsliða kvenna sem fram fara í nóvember.
Þær Berglind Þrastardóttir, Erla Sól Vigúsdóttir og Mikaela Nótt Pétursdóttir hafa verið valdar á æfingar hjá U19 en Jörundur Áki Sveinsson er þjálfari liðsins.
Þær Anna Rut Ingadóttir, Guðrún Inga Gunnarsdóttir og Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir hafa verið valdar á æfingar hjá U16 en Magnús Örn Helgason er þjálfari U16 og U17 kvenna.
Rut Sigurðardóttir og Viktoría Sólveig Óðinsdóttir hafa verið valdar á æfingar U15 en Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari liðsins.
Knattspyrnudeild Hauka óskar þeim stúlkum til hamingju og góðs gengis.
Ljósm. Hulda Margrét

Berglind

Erla Sól

Mikaela Nótt

Anna Rut

Guðrún Inga

Ragnheiður Þórunn

Rut

Viktoría