Arnór Pálmi Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka en hann á að baki 33 leiki fyrir meistaraflokk karla og hefur skorað fjögur mörk.
Arnór er flinkur miðjumaður og hefur lagt upp töluvert af mörkum fyrir liðsfélaga sína.
Stjórn knattspyrnudeildar fagnar nýjum samningi við Arnór.
Ljósm. Hulda Margrét