Gísli Þröstur Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka en hann á að baki 41 leik fyrir meistaraflokk karla og hefur skorað sjö mörk.
Gísli, fæddur árið 2000, er leikinn kantmaður og hefur lagt upp töluvert af mörkum fyrir liðsfélaga sína.
Stjórn knattspyrnudeildar fagnar nýjum samningi við Gísla.
Ljósm. Hulda Margrét