Alonso Karl Castillo, leikmaður 3. flokks karla, hefur verið valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum U15 ára landsliðsins dagana 23. – 25. febrúar 2022 sem fram fara í Skessunni.
Alonso er fæddur árið 2007 og er því á yngra ári í 3. flokki.
Knattspyrnudeild Hauka óskar Alonso innilega til hamingju með valið og óskar honum góðs gengis á æfingum með U15.