Baldur Örn skrifar undir samning við knattspyrnudeild Hauka

Baldur Örn Þórarinsson hefur skrifað undir samning við Hauka til næstu þriggja keppnistímabila.

Baldur er fæddur 2003 og er því enn gjaldgengur í 2 flokk Hauka og þykir mikið efni og hefur vaxið gríðarlega á síðustu árum.

Baldur er hávaxinn bakvörður sem að hefur leyst bæði hægri og vinstri bakvörð, er gríðarlega fljótur og með mikla hlaupagetu.  Baldur fékk smjörþefinn af því að spila með meistaraflokk í í fyrra og spilaði þá tvo leiki með liðinu.  Í vetur hefur hann tekið miklum framförum og hefur fengið mörg tækifæri á undirbúningstímabilinu.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar því að hafa náð samkomulagi við Baldur!

Ljósm. Hulda Margrét

Baldur Örn Þórarinsson