Haukar meistari meistaranna 2023

Sigurlið Hauka

Haukar eru meistari meistaranna 2023 eftir sigur á Val 77-78 í hörkuleik í Origo-höllinni, heimavelli Valskvenna. Haukar sem eru ríkjandi bikarmeistarar mættu Íslandsmeisturum Vals á þeirra heimavelli í leik sem var fjörugur og skemmtilegur.

Liðin skiptust á forystunni allan leikinn en í lokin náðu Haukar þægilegu 5 stiga forystu. En Valskonur náðu að setja 6 stig í röð á síðustu tveimur mínútum leiksins og komast yfir með einu stigi 77-76 þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir. Haukar tóku leikhlé og teiknuðu upp kerfi sem heppnaðist svona vel en Keira Robinson fékk boltann og keyrði á körfuna og skoraði um leið og flautan gall.

Stigahæst hjá Haukum var Keira Robinson með 20 stig og Þóra Kristín Jónsdóttir setti 15 stig.

Til hamingju Haukar!