Tristan vann Bikarsyrpu Taflfélags Reykjavíkur.

7 Haukakrakkar tóku þátt í Bikarsyrpu Taflfélags Reykjavíkur sem fram fór um Hvítasunnuna.

Bikarsyrpan er röð móta fyrir börn og unglinga sem haldið er 1 sinni á mánuði á vegum TR.

Hauka krakkar hafa verið dugleg að taka þátt á þessum mótum síðan í ca nóvember og hafa staðið sig vel.

Um síðustu helgi stóðu krakkarnir sig extra vel og vann Haukamaðurinn Tristan Nash Alguno Openia öruggan sigur á mótinu og fékk 6,5 vinninga af 7.

Aðrir stóðu sig undantekningalaust frábærlega og það hefur verið gaman og gefandi að sjá framfarirnar sem krakkarnir hafa sýnt í vetur.

Skákdeild Hauka verður með sumarnámskeið á þriðjudögum og fimmtudögum í júní og fram í júlí.

Sjá Sportabler.

https://www.abler.io/shop/haukar/sumarskoli/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjkyNzU=