Stelpurnar tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins um helgina. Haukastelpur sigruðu liðið HC Dalmatinka Ploče í tveimur leikjum með eins marks mun. Fyrri leikur liðanna endaði 24-23 og sá síðari 17-16. Samanlagt sigruðu Haukar einvígið 41-39. Glæsilegur árangur hjá þeim! Dregið verður í næstu umferð á morgun, þriðjudaginn 19. nóvember, klukkan 10:00. Næsta umferð í Evrópubikarnum fer fram í janúar.
Þetta voru síðustu leikir kvennaliðsins fyrir jól vegna landsliðsverkefna. Næsti leikur hjá stelpunum er útileikur á móti Stjörnunni 4 janúar.