Stelpurnar okkar hafa fengið frábæran liðsstyrk, þar sem Helga Torfadóttir hefur gengið til liðs við Hauka en hún lék áður með Team Tvis Holstebro.
Eins og menn vita er Helga gríðarlega öflugur markvörður og ekki síður er hún góður félagi.
Við bjóðum Helgu innilega velkomna í Haukafjölskylduna og bíðum spennt að sjá til hennar á milli stanganna næsta vetur.