Haukar-FH 8-liða úrslit karla

Strákarnir okkar eru komnir áfram í 4-liða úrslitin eftir sigur á FH í Kaplakrika í kvöld í framlengum leik. Í hálfleik var staðan 13-13 og 27-27 í lok venjulegs leiktíma. Í framlengingu tóku Haukar völdin og unnu 34:30.

Jafnræði var með liðunum nánast allan leikinn, það var þetta 2-3ja marka sveifla, síðan var jafnt og sveiflan fór í hina áttina. Strákarnir okkar mættu alltof værukærir til leiks, einbeiting var ekki í lagi og áttu þeir frekar dapran leik. Það var ekki fyrr en í framlengingu að þeir vöknuðu og kláruðu dæmið.

Þó leikurinn væri ekki vel spilaður þá var sigurinn fyrir öllu og frábært að klára 8-liða úrslitin í tveimur leikjum og fá smá frí, en fyrsti leikur í undanúrslitum er ekki fyrr en 19. apríl og þar mæta þeir annað hvort Val eða HK.