5-0 sigur á Huginn

Seinni æfingaleikur Mfl. karla í æfingaferðinni í Portúgal var háður sl. mánudag gegn Huginn frá Seyðisfirði og lauk þeim leik með mjög sannfærandi 5-0 sigri Hauka.

Markaskorara Hauka voru Daníel 2, Hilmar Geir 1, Arnar Steinn 1, og eitt mark var sjálfsmark andstæðinganna. Athygli vakti að fjögur af mörkum Hauka komu eftir föst leikatriði sem að öllu jöfnu hafa ekki verið sterkasta vopn Hauka sl. misseri.

Næsti leikur Hauka er laugardaginn 16. apríl gegn Gróttu í Deildarbikarkeppninni. Sá leikur verður á Stjörnuvellinum klukkan 13:00.