Adam Haukur Baumruk hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Adam Haukur er uppalinn hjá félaginu og hefur hann spilað með yngri landsliðum Íslands. Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall hefur hann unnið marga titla með félaginu og síðustu tvö ár hefur hann verið einn af lykilmönnum liðsins.