Fimmtudaginn 23. ágúst eiga allir nemendur sem hafa fengið inngöngu í Afreksskóla Hauka eða á Afrekssvið Hauka að mæta á stuttan upplýsingafund vegna afreksstarfsins sem fer af stað í næstu viku. Allir nemendur yngri en 18 ára eiga að mæta með foreldri/forráðamann með sér á fundinn. Fundur Afreksskólanemanna (9. og 10. bekkingar) verður klukkan 20:00 og Afrekssviðsnemendurnir eiga að mæta kl. 20:45. Báðir fundirnir fara fram í Veislusalnum á Ásvöllum.
Allir þeir sem sóttu um og komust inn á Afrekslínuna eiga að hafa fengið sendan tölvupóst með þessum upplýsingum. Ef þú ert í vafa um hvort þú eða þitt barn hafi komist inn á Afrekslínuna skaltu senda fyrirspurn á Kristján Ómar á mannsraekt@gmail.com.