Það er komið að næsta leik hjá stelpunum okkar. Þær unnu flottan sigur í Eyjum um síðustu helgi og eru staðráðnar í því að fylgja þeim leik eftir með góðri frammistöðu á móti Aftureldingu. Það er því um að gera fyrir allt Haukafólk að fjölmenna á laugardaginn kl. 16:00 á Ásvelli til að hvetja stelpurnar til sigurs. Áfram Haukar!