Látinn er góður og gegn Haukamaður, Ragnar Árnason.
Hann var einn af tryggustu stuðningsmönnum handboltans, haukur í horni,
mætti á flesta leiki glaður og hress. Skákmaður var hann snjall, formaður skákdeildar Hauka 2014 og stjórnarmaður til margra ára.
Félagið sendir fjölskyldu Ragnars innilegar samúðarkveðjur.