Aron Freyr hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næsta árs.
Aron Freyr er vel kunnugur á Ásvöllum en hann hefur spilað með Haukum síðustu tvö ár og á 32 leiki með Haukum og skorað 5 mörk.
Aron er 24 ára og er með mikla reynslu af mfl. Hann hefur spilað 119 leiki og 16 mörk í mfl. Getur leyst flestar stöður fremst á vellinum ásamt hægri bakvörð. Á fjóra landsleiki með U19 og U21 árs landsliðum Íslands.
Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Aron Frey og bindur miklar vonir við hann á komandi tímabili.
Áfram Haukar