Ásta Sól Stefánsdóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka til næstu tveggja ára en hún er uppalin hjá Selfossi.
Ásta er fjölhæfur leikmaður sem býr yfir miklum krafti og dugnaði. Hún getur leyst margar stöður á vellinum þó svo að hún leiki yfirleitt stöðu sóknartengiliðs en hún er útsjónarsöm og fylgin sér. Ásta mun efla hópinn okkar fyrir komandi baráttu.
Stjórn knattspyrnudeildar býður Ástu Sól vekomna í Hauka.