Þjónustustigið á Ásvöllum var aukið í dag þegar teknir voru í notkun tveir nýir sjálfsalar frá Selecta. Annar er Coke sjálfsali með áherslu á Topp, Powerade og Aquarius. Hinn er almennur vörusjálfsali með áherslu á muffins, kornstangir, Trópí, Kókómjólk, Snakk o.fl.
Báðir sjálfsalarnir taka við kortum (debit og kredit) en einnig er hægt að greiða í þeim með mynt.
Þriðji sjálfsalinn kemur svo til okkar eftir helgi en það er fullkominn kaffisjálfsali. Í honum verður hægt að kaupa gott kaffi, kakó og jafnvel te og súpur þegar fram lílða stundir. Hann mun verða staðsettur undir sjónvarpinu í almenna rýminu.