Strákarnir í Haukum-b töpuðu fyrir Ármanni-b i dag í B-deildinn í körfubolta 58-74. Eftir jafna þrjá leikhluta stungu Ármenningar af í lokaleikhlutanum og höfðu 16 sigur.
Stigahæstur hjá Haukum var Darrell Lewis með 30 stig.
Þrátt fyrir tap í dag er liðið í mikilli framför og nálgast annan sigur tímabilsins óðfluga.
Næsti leikur strákanna er á miðvikudag gegn Breiðabliki-b á Ásvöllum kl. 21.20.