Berglind Þrastardóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka en hún er ein af lykil leikmönnum í afar efnilegu liði 3. flokks sem komst í fjögurra liða úrslit Íslandsmótsins og hafnaði í öðru sæti í bikarkeppni KSÍ.
Berglind, sem fædd er árið 2004, spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki í sumar í Inkasso deildinni er hún kom inn á í sigurleik gegn Augnablik.
Berglind tók í sumar þátt í fjögurra landa æfingamóti í Víetnam með U15 ára landsliðinu þar sem Ísland gerði sér lítið fyrir og sigraði.
Knattspyrnudeild Hauka óskar Berglindi til hamingju með samninginn og bindur mikla vonir við hana í framtíðinni.