Björgvin Stefánsson, leikmaður meistaraflokks karla í knattspyrnu og markahæsti leikmaður 1. deildar á sl. keppnistímabili, fer í dag til reynslu hjá norska 1. deildar liðinu Kongsvinger og verður næstu 10 daga.
Fleiri lið hafa sýnt Björgvin áhuga en hann var til reynslu hjá Lilleström ásamt hafsentinum öfluga Gunnlaugi Fannari Guðmyndssyni.