Kæru Haukafélagar.
Þann 12. apríl nk. fagnar félagið okkar 90 ára afmæli. Í tilefni afmælisins gaf félagið út myndarlegt blað í samvinnu við Morgunblaðið. Blaðinu var dreift í aldreifingu á höfuðborgarsvæðinu og til áskrifenda Morgunblaðsins um land allt, fimmtudaginn 8. apríl.
Hér neðangreint má sjá blaðið með því að smella á tengil. Blaðið má einnig nálgast í Íþróttamiðstöðinni að Ásvöllum.