Körfuknattleiksdeild Hauka hefur náð samkomulagi við Brooke Wallace um að spila með liðinu í Domino‘s deild kvenna á næstu leiktíð.
Wallace er 22 ára miðherji og er 188 cm á hæð. Á síðustu leiktíð spilaði hún með Kentucky State University þar sem hún skilaði tæpum 13 stigum og 11 fráköstum að meðaltali í leik.
Með ráðningu Wallace er lið Hauka svo gott sem klárt fyrir baráttuna á komandi tímabili og er mikil eftirvænting fyrir næsta vetri.