Duga eða drepast í kvöld
Haukastelpurnar mæta Stjörnunni í hreinum úrslitaleik í Schenkerhöllinni í kvöld kl. 19:30 um réttinn til að spila um Íslandsmeistaratitlinn. Nú verða allir Haukar í horni og aðrir stuðningsmenn Hauka að fjölmenna á Ásvelli og hvetja okkar lið til sigurs. Við unnum báða heimaleikina og þar réð ekki minnstu öflugur stuðningur á pöllunum. Mætum vel og tímanlega. Þar sem þetta er oddaleikur skiptast tekjur milli félaganna og Hauka í horni þurfa því að greiða fyrir aðgang að leiknum.
Áfram Haukar!