Einar Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks Hauka í handbolta ásamt því að þjálfa U-lið félagsins. Einar hefur verið viðriðinn þjálfarateymi meistaraflokks karla undanfarin ár þar sem hann hefur verið þjálfari 3. flokks karla ásamt því að vera aðstoðarþjálfari í U-liðinu. Einar hefur áður verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks en hann var það síðast árin 2015 – 2017.