Handknattleiksdeild Hauka og Elías Már Halldórsson hafa komist að samkomulagi um að Elías Már gangi aftur til liðs við Hauka. Nýr samningur er til eins og hálfs árs eða til vors 2016. Það er fagnaðarefni að fá Elías Má aftur í raðir Hauka og mun hann án efa styrkja liðið í þeirri baráttu sem framundan er.
Áfram Haukar!