Elín Klara Þorkellsdóttir hefur verið valin í 20 manna hóp A-landsliðs kvenna fyrir forkeppni HM 2024 en þar mætir landsliðið Ísrael 5. og 6. nóvember. Báðir leikirnir fara fram hér heima og eins og í undanförnum leikjum hjá stelpunum okkar verður leikið á Ásvöllum í Hafnarfirði. Hópurinn kemur saman til æfinga 24. október og mun í undirbúningi fyrir leikina við Ísrael mæta Færeyjum í tveimur vináttulandsleikjum 29. og 30. október í Færeyjum.
Við óskum Elínu innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!