Erna og Hanna Guðrún í íslenska landsliðið

Í gær tilkynnti Júlíus Jónasson 16-manna landsliðhóp sinn sem mætir Frakklandi og Austurríki í undankeppni EM kvenna í næstu viku. Í hópnum eru þær Erna Þráinnsdóttir og Hanna Guðrún Stefánsdóttir leikmenn Hauka.

Fyrri leikurinn er gegn Frökkum og fer fram ytra í Besancon, miðvikudaginn 14.október. En seinni leikurinn er aftur á móti á Íslandi í Vodafonehöllinni sunnudaginn 18.október en þar mætir liðið Austurríki eins og áður hafði verið greint frá.

Í hópnum eru þrír leikmenn sem spila erlendis, það eru þær Arna Sif Pálsdóttir sem gekk til liðs við Horsens frá HK í sumar, Rakel Dögg Bragadóttir sem er að leika sitt annað tímabil með Kolding í Danmörku eftir að hafa spilað með Stjörnunni og svo Rut Jónsdóttir sem einnig leikur í Danmörku með liði Tem Tvis Holstebro en hún er uppalin í HK.

Landsliðshópurinn er eftirfarandi:

Markverðir:
Berglind Íris Hansdóttir, Valur
Íris Björk Símonardóttir, Fram

Aðrir leikmenn:
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Valur
Arna Sif Pálsdóttir, Horsens
Ágústa Edda Björnsdóttir, Valur
Ásta Birna Gunnardóttir, Fram
Elísabet Gunnardóttir, Stjarnan
Erna Þráinsdóttir, Haukar
Hanna G. Stefánsdóttir, Haukar

Harpa Sif Eyjólfsdóttir, Stjarnan
Hrafnhildur Skúladóttir, Valur
Karen Knútsdóttir, Fram
Rakel Dögg Bragadóttir, Kolding
Rut Jónsdóttir, Team Tvis Holstebro
Stella Sigurðardóttir, Fram
Sunna Jónsdóttir, Fylkir