Síðastliðinn laugardag, 14. maí, var haldinn uppskeruhátið handknattleiksdeildarinnar. Hátíðin heppnaðist ljómandi vel en hún litaðist aðeins af miklum Eurovision áhuga. Flottur matur var í boði frá Saffran og seinna um kvöldið fór fram verðlaunaafhending. Þeir sem fengu verðlaun voru:
Meistaraflokkur karla:
* Besti leikmaður, Freyr Brynjarsson
* Bjartasta vonin, Tjörvi Þorgeirsson
* Besti leikmaðurinn samkvæmt vali Hauka í horni, Einar Örn Jónsson
Annar flokkur karla:
* Besti leikmaður, Heimir Óli Heimisson
* Mestu framfarir, Stefán Rafn Sigurmannsson
Meistaraflokkur kvenna:
* Besti leikmaður, Þórunn Friðriksdóttir
* Bjartasta vonin, Elsa Björk Árnadóttir
* Besti leikmaður samkvæmt vali Hauka í horni, Erla Eiríksdóttir