Final 4 í handboltanum – Miðasala hafin

Nú er komið stutt hlé á deildarkeppni hjá meistarflokki karla og kvenna en í næstu viku taka bæði meistaraflokkslið Hauka þátt í Final 4. Fjörið hefst á undanúrslitum kvenna en þá mæta Haukastúlkur KA/Þór fimmtudaginn 8. mars kl. 19:30 í Laugardalshöll. Daginn eftir spila karlarnir við ÍBV kl. 17:15 einnig í Laugardalshöll. Úrslitaleikirnir verða svo leiknir í Laugardalshöll laugardaginn 10. mars. Það er því um að gera fyrir allt Haukafólk að taka dagana frá því að stuðningur áhorfenda skiptir miklu máli í svona leikjum.

Miðasala er hafin í afgreiðslunni á Ásvöllum og á Tix.is. Miða fyrir fullorðna á kvennaleikinn má nálgast hér og börn hér. Á karlaleikinn má nálgast fullorðinsmiða hér og barnamiða hér. Verð á stakan leik kostar 2000 kr fyrir fullorðinn og 500 fyrir börn en á Ásvöllum er hægt að kaupa miða á báða leikina í einu og þá er verðið 3000 kr fyrir fullorðinn og 600 fyrir börn. Rétta er að minna fólk á að kaupa miða á þessum stöðum svo að Haukar hljóti góðs af miðakaupunum því að ef miðar eru keyptir á öðrum stöðum þá fá Haukar ekki ágóðan af þeim. Fjölmennum svo í höllina í rauðu og styðjum Haukaliðin til sigurs. Áfram Haukar!