Um síðustu helgi var gert átak í því að fá Haukafólk til að þiggja N1 kortið og um leið styrkja Hauka en líka fá eldsneyti og fleiri vörur á betra verði. Fulltrúar frá N1 mættu á svæðið og buðu upp á grillaðar pylsur og gos. Þeir sem mættu frá Haukum gengu í hús og hringdu líka út í fólk. Skemmst er frá því að segja að þetta heppnaðist mjög vel og náði þessi vaski hópur Haukafólks nokkur hundruð nýjum korthöfum inn. Þessi samvinna er ekki bara fjáröflun fyrir félagið heldur einni fjáröflun fyrir þá einstaklinga sem í henni standa. Þeir sem voru duglegastir um helgina voru komnir yfir 20 þúsund kr. í þóknun til sín frá N1. Þessi fjáöflun er stöðugt í gangi og þeir sem vilja taka þátt í henni eru vinsamlegast beðnir um að senda póst á sigurjon@haukar.is til að fá nánari upplýsingar.
Áfram Haukar!