Haukar urðu fyrsta liðið til að leggja Keflavík að velli í vetur er þær tóku á móti þeim í Schenkerhöllinni í gærkvöldi.
Leikurinn var nokkuð jafn í fyrsta leikhluta en eftir það stungu Haukastúlkur af. Allt liðið spilaði einstaklega vel og var hittnin og sóknarhreyfing eins og best gerist. Vörnin var líka þétt og gáfust Keflavíkurstúlkur upp um miðjan þriðja leikhlutann.
Nú sýndu stelpurnar hvað þær geta og verður gaman að fylgjast með framhaldinu hjá þeim.