Fyrsti leikur tímabilsins í Inkassodeildinni hjá Meistaraflokki karla

Þá er loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir. Fyrsti leikur Hauka í Inkasso-deildinni í sumar.

Haukar leika sinn fyrsta leik í Inkasso-deildinni í ár. Þegar liðið tekur á móti Þór á iðagræna gervigrasinu okkar á Ásvöllum. Strákarnir sýndu flott tilþrif í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins þar sem að liðið laut í lægra haldi gegn sterku KA liði.

Ljósm.: Hafliði Breiðfjörð, Fotbolti.net

Leikurinn hefst klukkan 16:00 á morgun og vonumst við til þess að sjá sem allra flesta.

Fjölmennum á völlinn og hvetjum strákana. Áfram Haukar!