Á morgun verður fyrsta verkefnið í Lengjubikarnum fyrir meistaraflokk karla í knattspyrnu en þá verður leikið við Grindavík. Leikurinn fer fram í Reykjaneshöllinni og hefst hann kl. 21.00.
Þeir hafa verið að æfa stíft í allan vetur og því verður spennandi að sjá hvernig þeim mun ganga í svona æfingamóti áður en haldið verður í Íslandsmótið.
Að sjálfsögðu hvetjum við alla til að láta sjá sig og styðja sína menn.