Á laugardaginn er boðað til fundar með áhugasömum tippurum.
Á fundinum verður kynnt nýtt leikjaafyrirkomulag og skráning liða fer fram.
Framundan er skemmtilegur getraunavetur með glæsilegum verðlaunum. Aðalverðlaun vetrarins verða Evrópuferðir. Mótanefndin hefur fundað stíft undanfarið um skipulag vetrarstarfsins. Nefndina skipa: Ágúst Sindri Karlsson formaður, Jón Björn Skúlason, Heimir Heimisson og Bjarni Hafsteinn Geirsson.
Fundurinn verður í Getraunasalnum á 2. hæð og stendur frá kl. 10 til 12.
Léttar veitingar í boði Félagsráðs