Það var mikil spenna og eftirvænting ríkjandi þegar blásið var til leiks í 1. umferð Getraunaleiks Hauka á laugardaginn. Salurinn á 2. hæð þéttsetinn og létt yfir mannskapnum sem naut stundarinnar yfir léttu morgunverðarborði sem var í boði Félagsráðs.