Það voru nokkrir Haukamenn sem að skelltu sér austur yfir heiði og léku á 3 á 3 móti á Hellu í körfuknattleik. Þeir Emil Örn Sigurðarson, Stefán Þór Borgþórsson, Gunnar Magnússon og Morten Smiedowich léku undir merkjum Gullna Arnarins að þessu sinni og stóðu uppi sem sigurvegarar á mótinu.
Mótið var skemmtilegt í alla staði þó svo að fleiri lið hefðu mátt vera skráð til leiks en alls voru fimm lið sem að tóku þátt og unnu Gullni Örninn alla sína leiki.