Í hádeginu í dag var dregið í Eimskips bikar karla í Handknattleik þar sem Haukar drógust á móti erkifjendunum í FH og verður leikið í Kaplakrika. Ekki er langt síðan að liðin léku í Kaplakrika í dramatískum leik þar sem að Fimleikafélagið hafði betur undir lokin. Strákunum gefst því tækifæri til þess að hefna ófara og slá út Fimleikafélagið úr Bikarnum. Leikið verður helgina 6.-7. desember næstkomandi.
Sjá má dráttinn í heild sinni með því að smella á meira.
FH – Haukar
Fram – Valur
Selfoss – Stjarnan
Stjarnan 2 – Grótta
Leikirnir fara fram 7. og 8. desember.