Hákon Daði Styrmisson til Hauka

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Hákon Daða Styrmisson um að leika með félaginu út tímabilið. Hákon Daði kemur að láni frá ÍBV og eins og fyrr segir gildir samningurinn út tímabilið. Hákon Daði er einn af efnilegustu vinstri hornamönnum landssins og hefur spilað með yngri landsliðum Íslands. Hann spilaði meðal annars stórt hlutverk hjá U19 landslið Íslands á HM í Rússlandi þar sem liðið hafnaði í 3.sæti. 

Við fögnum því að fá þennan efnilega og metnaðarfullaleikmann í okkar hóp.

Hakon