Hanna Guðrún Stefánsdóttir var valin í úrvalslið umferða 10-18 í N1 deild kvenna en tilkynnt var um valið í gær. Hanna er eini fulltrúi Hauka í liðinu en Valur og Fram eiga þrjá fulltrúa hvor og Stjarnan einn. Haukasíðan óskar Hönnu og öðrum útnefndum til hamingju með árangurinn.
Liðið er svo skipað:
Markvörður: Berglind Íris Hansdóttir – Valur
Línumaður: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir – Valur
Vinstra Horn: Ásta Birna Gunnarsdóttir – Fram
Vinstri Skytta: Stella Sigurðardóttir – Fram
Hægra Horn: Hanna G. Stefánsdóttir – Haukar
Hægri Skytta: Alina Tamasan – Stjarnan
Miðjumaður: Karen Knútsdóttir – Fram
Þjálfari: Stefán Arnarson