Hanna G. Stefánsdóttir og Birkir Ívar Guðmundsson voru valin bestu leikmenn umferða 15.-21. í N1-deild karla og kvenna en útnefningin var kunngerð í hádeginu í dag.
Úrvalslið umferðanna voru kynnt í dag og eru Haukamenn þar fyrirferðarmiklir þar.
Þeir Freyr Brynjarsson og Sigurbergur Sveinsson eru ásamt Birki í karlaliðinu og Ramune Pekarskyte er í kvennaliðinu ásamt Hönnu.
Díana Guðjónsdóttir var valin besti þjálfarinn hjá konunum. Haukar fengu einnig verðlaun fyrir bestu umgjörðina í kvennaflokki.
Hægt er að sjá alla verðlaunahafana með því að smella hér.
Mynd: Hanna Guðrún hefur farið á kostum í vetur – stefan@haukar.is