Haukaliðin halda norður

Haukastrákrnir lyfta deildarbikartitlinum. Mynd: Eva Björk

Haukastrákrnir lyfta deildarbikartitlinum. Mynd: Eva Björk

Eftir vonbrigðin í síðustu viku þá er komið að næsta verkefni hjá meistaraflokkunum í handbolta þegar bæði lið halda norður á Akureyri á morgun, fimmtudag.

Það eru stelpurnar sem hefja leik þegar þær mæta KA/Þór í KA-heimilinu kl. 18:00 en fyrir leikinn eru Haukastelpur í harðri baráttu á toppi deildarinnar og því um mikilvægan leik að ræða í þeirri baráttu en það er alltaf erfitt að spila fyrir norðan og má því búast við hörkuleik.

Haukastrákarnir hefja svo leik kl. 20:00 einnig í KA-heimilinu þegar þeir mæta liði Akureyrar. Eins og stelpurnar þá eru strákarnir í baráttu um deildarmeistaratitilinn á meðan Akureyri er í báráttunni um að ná heimaleikjarétti í úrslitakeppinni og má því búast við erfiðum leik fyrir norðan.

Það er því um að gera fyrir Haukafólk fyrir norðan að mæta og sjá þessa hörkuleiki. Áfram Haukar!