Fyrsti titillinn hjá handboltanum þetta árið kom í hús nú áðan þegar Haukastelpurnar í 3ja flokki urðu Íslandsmeistarar með sigri á HK 35-33 eftir æsispennandi framlengdan leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 30-30 en HK var yfir í hálfleik 16-14.
Maður leiksins var valin Elsa Björg Árnadóttir leikmaður Hauka en hún skoraði 7 mörk í leiknum.
Til hamingju stelpur.
Áfram Haukar!