Þór Þorlákshöfn kemur í heimsókn í Schenkerhöllina í kvöld kl. 19:15 í Dominos deild karla.
Haukarnir áttu ekki góða síðustu viku er þeir töpuðu tveim leikjum á útivelli á móti Stjörnunni, í bikar og í deild. Strákarnir eru staðráðnir í því að komast aftur á sigurbraut og halda sér við topp deildarinnar. Haukarnir eru taplausir á heimavelli og hafa unnið síðustu þrjá heimaleiki mjög örugglega og eru allir staðráðnir í því að halda áfram sigurgöngu á heimavellinum.
Þórsarar hafa unnið tvo leiki af fimm. Allir leikirnir hjá þeim hafa verið miklir baráttuleikir og því má örugglega búast við miklum baráttuleik í kvöld. Þórsarar vilja spila hraðan leik, en þeir pressa stíft maður á mann allan völl og eru með marga góða skotmenn innan sinna raða.
Grillið verður á sínum stað fyrir leik og hvetjum við stuðningsmenn til að mæta snemma, fá sér börger og hita vel upp fyrir leikinn. Eftir leik mun nýr formaður kkd. Hauka, Kjartan Freyr Ásmundsson, ræða við stuðningsmenn okkar í Haukum í horni en auk þess mun þjálfari kk. og kvk. liðsins, Ívar Ásgrímsson, mæta og halda smá tölu um árangurinn sem af er, markmiðin og annað er viðkemur liðunum.