12. apríl 1931 komu 13 ungir piltar saman í húsi KFUM og stofnuðu Knattspyrnufélagið Hauka undir leiðsögn sr. Friðriks Friðrikssonar.
Á þessum 88 árum hefur félagið vaxið og dafnað og er í dag meðal öflugustu íþróttafélaga landsins.
Í tilefni þessa býður félagið Haukafólki og stuðningsmönnum til afmælisveislu nk. föstudag í anddyri íþróttahússins frá kl. 16:30 – 18.