Haukar áfram í Borgurnarbikarnum

13177957_10156871825650313_8400875304758964519_nHaukar sýndu mikla yfirburði á Ásvöllum í kvöld þegar liðið sigraði KFR í Borgunarbikarnum – lokatölur 4-0.

Þórður Jón Jóhannesson var á skotskónum annan leikinn í röð og kom Haukum í 1-0 eftir átta mínútna leik með flottu skallamarki.

Svo var komið að þætti Elton Renato Livramento Barros eða FuFura eins og hann er jafnan kallaður sem kom okkar strákum í 2-0 á 15. mínútu. FuFura bætti svo við tveimur mörkum áður en flautað var til leikhlés – þrenna staðreynd og vonandi það sem koma skal í sumar.

Strákarnir okkar fengu ágætis færi í seinni hálfleik til að bæta við mörkum en inn vildi boltinn ekki.

Næsti leikur Hauka verður í deildinni nk. laugardag þegar KA kemur í heimsókn á Ásvelli en leikurinn hefst kl. 17:15. Þá verða stuðningsmenn að fjölmenna á leikinn og hvetja okkar stráka til sigurs.

Áfram Haukar!