Eftir glæsilegan útisigur á nýliðum Gróttu er komið að næsta heimaleik og sá er ekki af verri endanum. Deildarmeistarar Akureyrar mæta í heimsókn og verður eflaust um jafnan og spennandi leik að ræða enda tvö hörkulið að leiða saman hesta sína.
Við mætum að sjálfsögðu á völlinn og hvetjum okkar menn til sigurs!
Áfram Haukar
ATH! Leikurinn hefst 18:30.