Haukar fá heimaleik í undanúrslitum Powerade-bikars karla en dregið var í dag. Strákarnir mæta Grindavík sem er eitt af toppliðum Iceland Express-deildarinnar.
Síðast þegar þessi lið mættust í deildinni hafði Grindavík betur hér á Ásvöllum 84-100.
Leikið verður 5.-6. febrúar en þessi lið etja kappi næst í deildinni 27. janúar og fá liðin tækifæri til að meta hvort annað fyrir stóra leikinn.
Þetta verður fyrsti undanúrslitaleikur Hauka á Ásvöllum í bikarnum en Haukar léku síðast í undanúrslitum árið 2000 en þá lék liðið á Strandgötunni.
Áfram Haukar!!!!